Algengar spurningar

Lóðir í fyrsta áfanga — Þórisvað og Þuríðarvað — eru tilbúnar til afhendingar. Við afhendingu er gatan komin í endanlega hæð, hitaveita, kalt vatn, fráveita, rafmagn og ljósleiðari að lóðarmörkum, og lóðarmappan í þínum höndum. Yfirborðsfrágangur, s.s. gangstéttir og götulýsing o.s.frv. lýkur á árinu 2027.
Það er misjafnt eftir staðsetningu: 1–4 metrar austast í hverfinu, 6–10 metrar meðfram Ölfusá og yfir 15 metrar í dæld um miðbik svæðisins. Lóðirnar standa ofan á árseti, ekki klöpp. Sérbýli eru því grunduð á ársetinu á þjöppuðum bögglabergspúða með jarðvegsdúk, skv. forskrift verkfræðistofunnar VSÓ Ráðgjöf. Jarðvegsgögn VSÓ fylgja hverri lóð sem seld er
Á einbýlishúsalóðum við Þórisvað er nýtingarhlutfall 0,5 — á 860 m² lóð eru það allt að 430 m², hús og bílageymsla samanlagt, á einni hæð. Á Þórisvaði 40–46 má byggja á tveimur hæðum að hluta. Á par- og raðhúsalóðum er nýtingarhlutfallið 0,7 og má byggja á einni til tveimur hæðum. Nákvæmar tölur fyrir hverja lóð eru í skipulagsskilmálum og á mæliblaði lóðarinnar.
Öll almenn byggingarréttar-, gatnagerðar,- og innviðagjöld eru þegar greidd. Á hverja íbúðareiningu leggst hins vegar sérstakt byggingarréttargjald, að upphæð kr. xxx.xxx sem verður innheimt af Sveitarfélaginu þegar xxxxxxxx xxxxx Einnig bætast við hefðbundin heimæðar- og tengigjöld veitna, byggingarleyfis- og úttektargjöld byggingarfulltrúa og skipulagsgjald ríkisins — öll samkvæmt gildandi gjaldskrám og greidd beint til viðkomandi aðila. Lóðarleiga greiðist Árborg frá því lóðarleigusamningur er gerður
Fyrri áfangi — sérbýlin við Þórisvað og Þuríðarvað — er í sölu nú og áætlað að fyrstu hús verði risin á árinu 202. Gatnagerð síðari áfanga fer fram á árunum 2027 til 2028 og mun sala á lóðum seinni áfanga, sem að uppistöðu eru fjölbýlishúsalóðir á sama tímabili. Uppbygging á jafn stóru hverfi og Árbakkalandið er fer eftir ýmsu, svo sem ytri aðstæðum í hagkerfinu. Gera má ráð fyrir að það taki allt að áratug að hverfið verði að fullu byggt.
Sveitarfélagið Árborg ber að tryggja börnum skólavist. Vallaskóli er sá grunnskóli sem er staðsettur næstur Árbakkalandi, í um 15 mínútna göngufjarlægð.
Áætlað er að leikskólinn verður byggður í síðari áfanga uppbyggingarinnar. Í miðju hverfinu er skipulögð leikskólalóð sem Sveitarfélagið Árborg á og stendur að uppbyggingu.
Um 15 mínútur.
Árbakkinn stendur á svæði sem er skilgreint sem flóðasvæði í aðalskipulagi Árborgar, og skipulag hverfisins er hannað með það í huga. Gólfkóti allra húsa skal vera að minnsta kosti 16 metrar yfir sjávarmáli og yfir landi umhverfis húsið. Kjallarar eru ekki heimilir, og landið næst ánni er látið óhreyft sem útivistarsvæði milli árinnar og byggðarinnar. Regnvatni er stýrt í lagnir og skurð við norðurjaðar hverfisins. Nákvæmar kröfur um gólfkóta hverrar lóðar koma fram á hæðarblaði sem fylgir lóðinni.
Það fólst í því hagkvæmni, að nýta verktakann sem stendur að gatnagerðarframkvæmdum á svæðinu til að flýta fyrir væntanlegum byggingartíma eftir að lóðir hafa verið afhentar. Allar lóðir þarf að fergja, þ.e. farg er lagt á byggingarreitinn eftir jarðvegsskipti og það látið liggja og síga í allt að 3-6 mánuði – eða allt þar til land er hætt að síga. Á lóðum þar sem jarðvegsskipti hafa ekki verið gerð, þá lánar Landsbyggð farg úr sameiginlegu fargsstæði hverfisins.
Tvær. Aðkoma er frá Árvegi um Þórisvað. Í síðari áfanga bætist við tenging frá Austurvegi að Ásavaði.
Deiliskipulagið er eftir Batteríið arkitekta og var samþykkt í bæjarstjórn Árborgar 2. október 2024. Verkfræðihönnun innviða er frá VSÓ Ráðgjöf og Eflu, landslagshönnun torgs og útisvæða frá Landform, og jarðvinna og gatnagerð í höndum Borgarverks. Landsbyggð þróar hverfið í samvinnu við Sveitarfélagið Árborg.
Byggingarrétt. Lóðirnar í Árbakkanum eru í eigu Sveitarfélagsins Árborgar, eins og allar íbúðalóðir á Selfossi. Þú kaupir byggingarréttinn af Ásavaði ehf. (sem er dótturfélag Landsbyggð hf.) og gerir lóðarleigusamning við Árborg.
Innborgun, 15 % kaupverðs, greiðist við undirritun kaupsamnings og eftirstöðvar, 85%, við afhendingu lóðar og afsal byggingarréttar. Nánari skilmálar eru í söluskilmálum Árbakkans.
Einbýlishúsalóðir eru seldar a.m.k. ein á hvern kaupanda en það er sjálfsagt að sami aðili kaupi fleiri en eina lóð. Par- og raðhúsalóðir eru seldar saman — parið eða lengjan — til sama byggingaraðila, því hvert parhús og hver raðhúsalengja er hönnuð sem ein heild samkvæmt deiliskipulagi.
Nei. Kaup á byggingarrétti eru endanleg. Riftun kemur aðeins til vegna vanefnda samkvæmt söluskilmálum.
Sækja skal um byggingarleyfi innan [8] mánaða frá afhendingu lóðar, hefja framkvæmdir innan [8] mánaða frá samþykkt byggingaráforma og ljúka ytra byrði húss og grófjöfnun lóðar innan [24] mánaða frá samþykkt byggingaráforma. Lóðarfrágangi skal lokið eigi síðar en við fokhelt.
Með fullgerðri götu og hitaveitu, köldu vatni, fráveitu, rafmagni og ljósleiðara að lóðarmörkum. Lóðin sjálf er afhent í núverandi ástandi — hluti lóðanna hefur þegar verið jarðvegsskiptur og fergður. Lóðinni fylgir lóðarmappa með mæliblaði, hæðarblaði, skipulagsskilmálum, jarðvegsgögnum VSÓ Ráðgjafar, hönnunarviðmiðum Árbakkans og einingarverðum og tengilið Borgarverks fyrir jarðvinnu.
Jarðvegsgögn lóðarinnar segja til um það. Næst Ölfusá, þar sem silt-ársetið er þykkast, mælir VSÓ Ráðgjöf með fergingu í 2–3 mánuði með sigmælingum þar til sig stöðvast; austar í hverfinu þarf minna eða ekkert farg. Fargið færðu úr fargsstæði hverfisins — Landsbyggð lánar það og greitt er fyrir rýrnun
Þú, með þínum verktaka. Jarðvinnuverktaki Árbakkalands er Borgarverk ehf., og vinnur eftir forskrift VSÓ á föstum einingarverðum sem fylgja lóðarmöppunni. Borgarverk mælir og sendir þér reikning beint. Þú mátt líka nota eigin verktaka — við mælum eindregið með sömu forskrift og mælingum, því hönnuður þinn og byggingarstjóri bera ábyrgð á grunduninni gagnvart byggingarfulltrúa.
Kostnaðurinn fer eftir stærð byggingarreits og þykkt mýrarlagsins; einingarverð Borgarverks fylgja lóðarmöppunni og jarðvegsgögnin sýna áætlað dýpi. Jarðvegsskipti taka einhverja daga en ferging líklega 2–3 mánuði og allt að 5-6 mánuði. Byrjaðu því um leið og byggingarreitur er staðfestur — samhliða hönnun — svo lóðin sé byggingarhæf þegar byggingarleyfið kemur.
Skipulagsskilmálar Árborgar setja rammann: hæðir, nýtingarhlutfall, fjórðungur framhliðar inndreginn um metra, tvö bílastæði á sérbýlislóð, gólfkóti. Þakform er frjálst. Hönnunarviðmið Árbakkans — flöt eða einhalla þök, stílhreinar klæðningar, garðveggir og skýli í sama efni og húsið — eru tilmæli sem fylgja lóðarmöppunni, til að hverfið haldi heildstæðu yfirbragði.